.net
Ég var að klára setja inn myndagalleríið. Það inniheldur ca. 200 myndir sem Þór tók á dimmission deginum. Það væri gaman ef einhver ætti myndir úr útskriftarferðinni að setja þær líka inn, viðkomandi er beðinn um að hafa samband.
Svo er líka komin ný Bekkjar bora, sýnum dug og kjósum rétt!
Ég er líka að fara til Köben í byrjun ágúst spurning um að hafa bara ríúníon... talandi um ríúníon þá var ég að heyra að það væri verið að skipuleggja teiti í tilefni að bráðum er eitt ár liðið frá útskriftarferðinni. Mér skylst það eigi að leigja einhvern stað og hafa ókeypis inn og tilboð á barnum. Svo ætlar víst Ernesto af Perla Pizzeria að sjá um matinn og vera á barnum... nei grín.
Okkar ástkæri bekkjarbróðir, Kári Allansson, hefur verið fluttur út landi af illum öflum og það er nú þegar hafin söfnun til að ná bróðurnum heim, lesið allt um það hér.
Svo er hér að lokum blátt reiðhjól, kannast einhver við það?
Bless kex
Haukur Kakómassi
