Jæja hvað segir fólkið þá!
Drullu flott síða maður það er svona höfðingjabragur yfir henni.
Mér lýst bara mjög vel á þetta partý heima hjá Rúna sem Ingólfur
var að tala um.
Var Heidrún annars eina stelpan sem að var með okkur í bekk.
Gunnhildur er ekki einu sinni búinn að skrifa inná síðuna.
En betra er seint en aldrei eins og bændur orða það....lítiði bara á mig.
En verður maður ekki að fara að koma sér í háttinn núna, klukkan er að
ganga tvö. Það er stór dagur á morgun...útlönd sjáðu til!
Góða nótt!
fimmtudagur, apríl 10, 2003

miðvikudagur, apríl 09, 2003
Góða ferð í útlandið en passaðu þig Kárfreður...það er víst stríð í Stokkhólmi núna...sá það í sjónvarpinu.
JEDÚDDAMÍA hvur rækallinn barasta og farið það til Kárans fjárans til.......#$"#$$#$ Núna fara þessir skaðræðis páskar að koma hingað óboðnir og tröllríða landanum allhressilega eins og venja er! Ekkert er viðbjóðslegra en að horfa á spikafeita íslendinga troða slefandi í sig 1-2 kílóum af súkkulaði....svo las ég líka á veraldarvefnum að súkkulaði gerir fólk heimskt...heimskt eins og svín.....hahaha þið eruð heimsk svín......nei svín er sæt...krúttileg og skemmtileg...en það eru þið aldeilis ekki...ég er hættur við þetta...þið eruð ekki heimsk svín...þið eruð heimskir ljótir djöflar...OG HANANÚ!!!!
Asnalegir þessir páskar og sérstaklega þetta páskafrí...bara frí...útaf hverju??? Eitthvað í sambandi við hann Jesús eða pabba hans geri ég ráð fyrir en enginn veit...væri ekki réttara að færa þetta frí yfir sumartíman og lengja sumarfríið...hefði nú haldið það.
Ohh verð að fara að halda upp á páskana later dudes and dudines!!!!!!!!!!!!!