Takk Siggi fyrir að skemma uppsetninguna á gömlu síðunni

miðvikudagur, mars 26, 2003

Jæja loksins skrifar einhver. En það á samt helmingurinn af bekknum ennþá eftir að skrá sig inná síðuna, hvað er það? Ég er samt búinn að senda mail á alla tvisvar.
Lítill fugl að nafni Sigurgeir hvíslaði því að mér að það væri stefnt á sumarbústaðarferð núna í apríl. Rétt upp hönd sem er til í það! Spurning um að reyna fá einhvern annan bústað en þetta græna helvíti sem við fórum í síðast.
Svo er enginn annar en Bjarni Dojdsland að koma heim um helgina, ég hef heyrt að hann sé kominn með mullet og mottu.

0 Komment:

Skrifa ummæli

<< Heim