Vandamál?
Nei Mandavál! Það eru einhverjir sem hafa verið í vandræðum með að skrá sig inná síðuna. Hér eru smá leiðbeiningar.
Þú þarft að opna póstinn sem ég sendi þér um daginn og ýta á linkinn sem var í honum og skrá þig þar. Ef það er eitthvað vesen og tölvan segir eitthvað um "Cookies" þá þarftu að gera eftirfarandi: (ef að það er ekkert vesen að skrá sig inn þá þarftu ekkert að hugsa um þetta sem er hér fyrir neðan)
Fara í Tools, Internet options og þar í Privacy. Þar áttu að geta stillt "Cookies" það er best að setja það í low.
Síðan sjálf er á www.gamlibekkurinn.blogspot.com en til að skrifa inná hana þarftu að fara á www.blogger.com þar skrifar þú inn nafn og lykilorð sem þú valdir áður. Þá opnast svona gluggi sem þú sérð allt sem hinir hafa skrifað og svo er auður gluggi fyrir ofan það þar sem þú getur skrifað. Mundu bara að þegar þú ert búin að skrifa pistil ýttu þá alltaf á takka uppí hægra horninu sem stendur "post & publish". Síðan líður smá tími þar til pistillinn birtist á síðunni sjálfri.
Ef það er eitthvað vandamál hikiði þá ekki við að senda mér mail : )

0 Komment:
Skrifa ummæli
<< Heim