Ólafur minn þú þarft ekki að fara í eitthvað áhugasviðspróf til þess að vita hvað þú átt að gera. Þú talar bara við þann sem þekkir þig best...MIG. ef þú varst ekki búinn að fatta það. Ég hefði nú geta sagt þér að þú þrifist ei vel í sálfræði því skítugri sálir en þín eru vandfundnar. Best fyrir þig er að byrja á að koma hingað til mín í Dk og fá bjór. Því ekkert verður ákveðið án öls.
Þú hefur á kött,hamstur,hund,kærustur og eitthvað fleira þaning að það er deginu ljósara að þú ert hrifinn af dýrum. Þú ert ekki hrifinn af bókum,fyrirlestrum og powerpoint slideshowfi! þannig þú byrjar að sækja um vinnu hér í Odense ZOO. Ýmislegt sem þú ættir að geta gert þar. EN EF þú fílar ekki dýragarðinn (sem væri einkennilegt því það eru apar í honum) þá reynum við bara næsta kost. Þú kannt manna best við áfengi. Þannig að leið þín liggur þá beint í barþjónaháskólann. Eftir að barþjónsprófi er náð á nótæm færðu bókað toppvinnu á einhverjum klassastað og í beinu konntakti við búz alla daga vikunnar og vellíðan er tryggð og jafnvel fín laun. Ef svo ólíklega vill til að barþjóninn eigi ekki við þig þá eru fleiri góðir kostir í stöðunni. Strandvörður (ísland kemur því miðar ekki til greina í þeirri atvinnugrein), Kvennablaks dómari/þjálfari, fæðurbótaefnainnflytjandi og margt fleira. já ég þekki þinn hug og langanir...hvað kostar Strongprófið???? Óli þetta var GRATIS MIN VEN...
Farvella og hikið ei að spyrja mig ráða um hvert þið eigið að stefna í lífinu.
Sáli

0 Komment:
Skrifa ummæli
<< Heim