Takk Siggi fyrir að skemma uppsetninguna á gömlu síðunni

fimmtudagur, apríl 24, 2003

Gleðilegt sumar kæru félagar!!
Nú er ekkert annað hægt að gera í stöðunni en að vippa sér í speedo-inn og fara í vatnsblöðruslag...þetta er svo yndislegt ég finn alveg hvernig fiðrildin í maga mér ólmast (einsog kvígur að vori sem hafa staðið á bás í allan vetur en lokst fá að fara út til að sjá sólina brjótast fram úr skýjunum til þess eins að láta geisla sína leika um stirðan og rykfallinn skrokk þeirra) meðan ég bíð hér í sætinu mínu eftir að Steingrímur stærðfræðikennari kemur í kaffipásunnni sinni.
Ummm ég finn hvernig sumarangan laumast inn um opinn gluggan hér í Tækniháskólanum..ég get ekki setið hér lengur....verð að þjóta út og bjóða sumrið velkomið...hjartanlega velkomið
Steingrímur neiiiii...stopp stop segji ég.....Auf wiederzen

0 Komment:

Skrifa ummæli

<< Heim